Frankenweenie

Frankenweenie (2012)

"Það er líf eftir dauðann."

1 klst 27 mín2012

Hinn ungi Victor hefur nýverið misst sinn besta vin, hundinn Sparky, sem var ekkert nema tryggðin og vinarþelið uppmálað.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum
Hvar má horfa

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:HræðslaHræðsla

Hvar má horfa

Streymi

Söguþráður

Hinn ungi Victor hefur nýverið misst sinn besta vin, hundinn Sparky, sem var ekkert nema tryggðin og vinarþelið uppmálað. Þegar Sparky, sem leikur aðalhlutverkið í heimagerðum skrýmslamyndum Victors, lendir fyrir bíl verður Victor afar sorgmæddur og á erfitt með að sætta sig við orðinn hlut. Dag einn í náttúrufræðitíma í skólanum útskýrir kennarinn fyrir bekknum að í raun séu vöðvaviðbrögð knúin áfram af rafboðum sem virkja taugarnar. Þessu til sönnunar sýnir hann nemendum sínum hvernig dauður froskur hreyfist á ný þegar rafmagn er leitt í gegnum hann. Þetta gefur Victor hugmynd. Hann ákveður að láta reyna á tæknina, fer og grefur Sparky upp, klastrar honum saman (Sparky hafði dáið í bílslysi og er frekar óhrjálegur) og hífir hann síðan upp á þak í þrumuog eldingaveðri. Tilraunin heppnast og Sparky vaknar á ný til lífsins, jafn ljúfur og hann hafði alltaf verið. En upprisunni fylgja ýmis vandamál ... Þegar "skrýmslið" vaknar og veldur skelfingu meðal nágranna, þá þarf Victor að sannfæra þá um að þó að Sparky líti skelfilega út, sé hann enn sami góði og vinalegi hundurinn og áður.

Svipaðar myndir

Fearless
Fearless
2020·IMDb 5.0
Líka gaman, vísindaskáldskapur
Netflix
Einkunn
Space Chimps
Space Chimps
2008·IMDb 4.5
Líka gaman, vísindaskáldskapur
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

John August
John AugustHandritshöfundur

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Umsagnir á TMDB

Framleiðendur

Walt Disney PicturesUS